Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Alicante
Þessi eign er ekki í boði
REF 2906459
Einbýlishús, aðeins 200 metrum frá San Juan ströndinni, vinsælli strönd við Costa Blanca. Göngugatan býður upp á margs konar þjónustu, verslanir, hótel, veitingastaði, leiksvæði fyrir börn og strandbari. Að auki er gott framboð af vatnaíþróttum á svæðinu. San Juan er aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante og er vel tengd öðrum borgum við norður Costa Blanca, þökk sé AP7 hraðbrautinni.
Í boði eru tvær eignir, á tveimur hæðum og byggðar á 400m2 lóðum, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og kjallara/bílskúr. Opin hönnun á jarðhæð hefur stofu, fullbúið eldhús og borðstofu ásamt stórri verönd, þar sem má njóta fallegs sjávarútsýnis. Öll 3 svefnherbergin eru á efri hæð, þar af tvö með sérbaðherbergi og fataherbergi. Rúmgóðan stigapallinn má nýta sem auka setustofu eða breyta í svefnherbergi.
Kjallarinn/bílskúrinn samanstendur af geymslurými og lagnir eru fyrir baðherbergi, auk 111-120m2 bílskúrs fyrir nokkra bíla þar sem lagt er fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla og vatnsíþróttabúnað. Lyfta tengir allar þrjár hæðir húsanna.
Húsin eru byggð með hágæða efnum og velja má um ýmislegt. Húsunum fylgir loftkæling/hitun, gólfhiti, eldhústæki, gestasalerni er á jarðhæð, fullfrágenginn garður með vökvunarkerfi og einkasundlaug, lyfta, lagnir fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla og sjálfvirk bílskúrshurð með fjarstýringu.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Alicante
Alicante er höfuðborg héraðsins, staðsett á miðri Costa Blanca og skilur þannig milli norður og suður Costa Blanca.
Þéttbýliskjarninn er fullkominn fyrir fólk sem kýs að búa í stórborg, með allri þeirri þjónustu sem því fylgir. Á þessu svæði einkenna fasteignaúrvalið eingöngu fyrsta flokks íbúðir við ströndina eða mjög nálægt frægustu strönd borgarinnar, Postiguet-ströndinni. Fjær þéttbýliskjarnanum, en þó við ströndina, er að finna margskonar íbúðasvæði eins og La Albufereta, Cabo Huertas og San Juan ströndina, þar sem húsagerðirnar eru fjölbreyttari. Hér bjóðum við upp á stórkostlegt val einbýla, raðhúsa og íbúða. Hér má sjá fasteignirnar í Alicante.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum