Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Alicante, San Juan Playa
Þessi eign er ekki í boði
REF 206305
Nýr íbúðakjarni staðsettur 200 metra frá ströndinni í San Juan, Alicante. Framúrskarandi staðsetning með greiðum aðgangi að allri þjónustu og miðbænum í Alicante.
Íbúðir með 2, 3 og 4 svefnherbergjum og stórum veröndum. Þakíbúðir hafa fallegt útsýni yfir sjóinn. Góður frágangur er á eignunum, gluggahlerar í stofu og hjónaherbergi eru rafknúnir, hiti er í gólfum og hverri eign fylgir bílastæði. Stórt sameiginlegt svæði er í kjarnanum, með stórri sundlaug, nuddpotti, líkamsræktaraðstöðu, finnsku gufubaði, Chillout svæði, klúbbhús og stæði fyrir reiðhjól.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Alicante, San Juan Playa
Íbúðabyggðin heyrir undir Alicante-borg og er í 7 km. fjarlægð frá miðbæ borgarinnar, við 100 m. breiða og 6 km. langa strönd.
Þetta er ein besta strönd spænska Miðjarðarhafsins þar sem finna má ýmis konar þjónustu. Ströndin ber hinn virta evrópska Bláa Fána og San Juan Playa er framúrskarandi ferðamannastaður, með miklu úrvali íbúða við ströndina og rað- og einbýlishúsa inn til landsins. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í San Juan Playa:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum