Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
REF 4150437
Staðsett í einstöku íbúðahverfi í Benissa, með glæsilegu útsýni yfir Cala de la Fustera, við norður Costa Blanca. Mikið úrval af daglegri þjónustu og virtum veitingastöðum eru í boði í nærliggjandi borgum, Benissa, Calpe og Moraira og boðið er upp á margs konar íþróttaaðstöðu, eins og golf, siglingar, tennis og padel, auk hestaferða, í nágrenninu. Svæðið er friðsælt og umkringt náttúru, í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni og með aðgangi að öllum þægindum til daglegs lífs.
Einstakt einbýlishús með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á tveimur hæðum, auk þakverandar og kjallara, byggt á stórri lóð eða 1.347m2. Aðalhæðin samanstendur af setustofu með tvöfaldri lofthæð, borðstofu og sér eldhúsi. Gott flæði er milli þessara rýma sem opnast út á glæsilega verönd og sundlaugarsvæði. Einnig er svefnherbergi með en-suite baðherbergi, þvottahús og gestasalerni á þessari hæð. En-suite hjónaherbergi og 2 svefnherbergi með sameiginlegu baðherbergi eru á efri hæð. Verönd er við hvert svefnherbergi sem býður upp á stórbrotið útsýni yfir Miðjarðarhafið eða landslag í kring. Ytri stigi liggur frá aftari veröndinni á efri hæð uppá þakverönd, sem er útbúin fyrir uppsetningu nuddpotts. Innri stigi liggur niður í kjallara sem er stórt fjölnota rými eða 202m2 en þar eru vatns- og rafmagnslagnir, sem gerir kleift að breyta honum í aukaíbúð, eða hvaðeina sem hugurinn girnist.
Hægt er að nálgast útisvæðin úr öllum herbergjum á aðalhæðinni, tilvalið til að njóta loftslags Costa Blanca allt árið. Stórkostlegur garður, með náttúrulegu grasi og staðbundnum plöntum, er fullkomnaður með ótrúlegri sjóndeildarhringslaug og afslöppunarsvæði, þar sem njóta má lífsins að kvöldi til, fyrir framan notalegan arin.
Húsið eru byggt með gæðaefnum og frágangi, og því fylgir loftkæling með foruppsetningu fyrir hitastilla í hverju rými, eldhústæki, gólfhiti á jarðhæð og efri hæð, inni og úti LED lýsing, snjallkerfi, sundlaug með foruppsetningu fyrir varmadælu, og bílastæði á lóð fyrir tvo bíla.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.
Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum