Costa Blanca Norður, Marina Alta, Jávea
REF 5093693
Lúxús hús á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum, hvert með sitt baðherbergi, byggð á lóðum sem eru 1.000-1.600 m2. Húsin eru nútímaleg með opnu skipulagi sem sameinar stofuna, borðstofuna sem er með mikla lofthæð og eldhúsið, sem er með morgunarverðarborði. Stórir gluggar/hurðar á jarðhæðinni opnast út á veröndina sem er hálf yfirbyggð og með sundlaug. Í garðinum er aðgengi að fullbúnu salerni. Frábært íverusvæði er á hinni hliðinni við sundlaugina sem er gott til að halda veislur en þar er úti eldhús og rými til að borða og njóta loftlagsins við Miðjarðarhafið á kvöldin með vinum og ættingjum.
Á jarðhæðinni er tvöfalt svefnherbergi, og á annarri hæð eru tvö svefnherbergi og hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi. Herbergin opnast öll út á verönd með útsýni yfir sundlaugina og garðinn.
Húsin er hönnuð þannig að þau njóti sem mest náttúrulegrar birtu sem tryggir björt rými og þeim mun fylgja loftkæling sem bæði hitar og kælir, fullbúið eldhús, fataskápar og baðherbergi, útieldhús með pergólu, sundlaug og bílastæði.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Jávea
Jávea er eitt af afmörkuðustu svæðunum við norður Costa Blanca. Fegurð landsins felst í fullkomnu jafnvægi hafs og fjalla, sem hefur orðið til þess að staðurinn er einn sá eftirsóttasti á meðal efnaðra kaupenda.
Þjónustustig og fasteignaframboð í Jávea er einstaklega gott. Einbýlin sem hafa stórkostlegt sjávarútsýni eru meðal eftirsóttari fasteigna á svæðinu, þó einnig megi finna hér gott úrval íbúða og raðhúsa í þéttbýli. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Jávea
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum