Costa Blanca Norður, Marina Baja, Alfaz del Pi - El Albir
Þessi eign er ekki í boði
REF 3696828
Nýr íbúðakjarni á hinu vinsæla svæði Alfaz del Pi, við norður Costa Blanca. Frábært svæði og mikið úrval af daglegum nauðsynjum, auk verslanamiðstöðvar í stuttri akstursfjarlægð frá kjarnanum sem er að auki umkringdur fallegu náttúrulegu umhverfi og býður upp á margs konar útivist, svo sem fjallgöngur, hjólreiðar, tennis og paddle í íþróttamiðstöðinni á staðnum, auk golfvalla í næsta nágrenni. Fallegar strendur El Albir og Altea eru nálægt kjarnanum.
Boðið er upp á íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, af mismunandi gerðum; jarðhæð með garði, miðhæð með rúmgóðri verönd og þakíbúð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með stórri setustofu, borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd sem snýr í suður, með ótrúlegu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Sameiginlegt svæði er 300 m2 og inniheldur 2 infinity sundlaugar með útsýni yfir flóann, barnaleikvöll, garða og bílakjallara með geymslueiningum.
Íbúðirnar eru hannaðar til að hleypa inn eins miklu náttúrulegu ljósi og hægt er og velja má um ýmislegt við kaupin. Eignunum fylgja loftkæling, eldhústæki, fataskápar, þvottahús, myndavélardyrasími, geymsla og bílastæði. Þakíbúð fylgir uppsetning fyrir nuddpott á þakveröndinni.Costa Blanca Norður, Marina Baja, Alfaz del Pi - El Albir
Alfaz de Pi er bær við Norður Costa Blanca, sem liggur að Altea og Benidorm. Þéttbýliskjarnann er að finna í hlíðum Sierra Helada, um 3 km. upp af ströndinni. Bærinn hefur einnig yfir að ráða 4 km. strönd, þar sem ströndin El Albir stendur fram úr.
Strönd sett steinum þar sem finna má ýmis konar þjónustu og tómstundir sem boðið er upp á í bænum, ásamt einstöku úrvali af íbúðum. Hér eru margir þéttbýliskjarnar með einbýlishúsum og íbúðum við ströndina, sem eru algengustu húsin á Alfaz del Pi. Mikils metið svæði vegna vel efnaðra íbúanna sem kaupa við ströndina. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Alfaz del Pi - El Albir.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum