Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Þessi eign er ekki í boði
REF 3063903
Nýr kjarni einbýlishúsa á vinsælu svæði í Polop, sem umkringt er náttúru og býður uppá fallegt útsýni yfir sjóinn. Aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá bænum La Nucia og 15 mínútur til Altea eða Benidorm með sínum vinsælu ströndum og skemmtigörðum. Svæðið er vel tengt við Alicante og Valencia, þökk sé AP-7. Alicante flugvöllur er í 50 mínútna fjarlægð með bíl.
Í boði eru tveggja hæða einbýlishús, með 3 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum og kjallara. Rúmgóð stofa, eldhús og borðstofa er í húsunum og stór verönd, að hluta til yfirbyggð, ásamt einkasundlaug. Í kjallaranum er þvottahús, geymsla og svæði sem nýta má í hvað sem hugurinn girnist.
Velja má um tvær útfærslur á eignunum; 1 svefnherbergi og 1 baðherbergi á jarðhæð og 2 svefnherbergi með sér baðherbergjum á efri hæð, hvort um sig með aðgangi að verönd eða 2 svefnherbergi og 1 baðherbergi á jarðhæð, með stóru svefnherbergi á efri hæð, með baðherbergi, fataherbergi og aðgangi að einkaverönd.
Verkefnið býður einnig upp á einbýlishús á einu stigi, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, kjallara, einkasundlaug og bílastæði á lóðinni.
Loftkæling/hitun fylgir húsunum, fullkláraður garður með vökvunarkerfi, svokallaðri infinity sundlaug og bílastæði fyrir allt að 2 bifreiðar á lóðinni.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum