Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
Þessi eign er ekki í boði
REF 4328810
Einbýlishús í Miðjarðarhafsstíl, á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og hvítum framhliðum þar sem notaður er viður og flísar fyrir hlýrra útlit. Húsin eru byggð á lóðum á milli 437m2 - 455m2, með stórum veröndum, garði og einkasundlaug. Opna stofan er rúmgóð og björt, þökk sé tvöfaldri lofthæð. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi og stóru fataherbergi.
Gæðafrágangur er á eignunum, þeim fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum, sturtugler, frágenginn garður, einkasundlaug og hellulagt bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum