Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 114232
Lítill kjarni raðhúsa í Benijofar, sem er lítill bær á Suður Costa Blanca, í um 8 km fjarlægð frá ströndum Guardamar. Þó að í bænum Benijofar megi finna alla nauðsynlega þjónustu er vert að benda á verslanir og veitingastaði í nærliggjandi hverfum eins og Benimar og Ciudad Quesada en þar er að auki La Marquesa golfvöllurinn og hinn vinsæli vatnagarður Aquapark.
Raðhúsin eru staðsett nálægt stórum almenningsgarði með fallegu lóni en garðurinn er tilvalinn fyrir börnin að leika sér.
Öll húsin snúa í suður og eru byggð á lóðum milli 107 og 150 m2 að stærð. Þau eru á tveimur hæðum og hafa að auki kjallara. Þrjú svefnherbergi og 2 baðherbergi eru í húsunum og úr stofu má ganga út en húsin hafa hvert sinn garð og verönd. Sameiginlegt svæði með sundlaug og garði er í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum