Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
REF 4815409
Nýr kjarni einbýlishúsa í Benijófar, spænskum bæ við Costa Blanca. Næg þjónusta er í þorpinu sjálfu, sem og í Ciudad Quesada, íbúðarhverfi skammt frá. Aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð er að fallegum ströndum Guardamar og Torrevieja.
Húsin eru nútímaleg og byggð á stórum lóðum með flisalögðu útisvæði. Byggð á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum sem bæði eru innaf svefnherbergjum. Á jarðhæð er rúmgóð opin stofa og eldhús. Tvöföld lofthæð er í stofu. Á jarðhæðinni er einnig eitt stórt svefnherbergi með baðherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og verönd. Stórt útisvæði samanstendur af flísalagðri verönd og eigin sundlaug. Öllum húsum fylgir lýsing, innan- og utandyra og bílastæði á lóð.
Hönnun er falleg og frágangur fyrsta flokks, gera má einhverjar breytingar á efnisvali.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum