Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 1919092
Nýr kjarni í Doña Pepa, Ciudad Quesada en í næsta nágrenni er næg þjónusta, ásamt La Marquesa golfklúbbnum og La Mata þjóðgarðinum. Stutt er að aka til stranda Guardamar og Torrevieja og u.þ.b. 30 mínútna fjarlægð er frá flugvellinum í Alicante. Tilvalið svæði fyrir þá sem leita að friðsælum stað sem umkringt er náttúru, en samt nálægt daglegum þægindum. Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Hver íbúð er með opinni stofu og eldhúsi og opnast út á rúmgóða verönd. En-suite hjónaherbergið opnast einnig út á þessa verönd. Íbúðir á jarðhæð njóta yndislegs garðs en íbúðir á efri hæð eru með rúmgóðri þakverönd sem hægt er að nálgast frá veröndinni. Íbúðirnar hafa verið hannaðar til að hleypa inn eins miklu náttúrulegu ljósi og mögulegt er, með notkun stórra glugga. Samstæðan er hönnuð í klassískum Miðjarðarhafsstíl og felur í sér sameiginlega sundlaug og aðlaðandi garða til að slaka á.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum