Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 3066881
Glæsileg einbýlishús staðsett í rótgrónu íbúðahverfi Ciudad Quesada. Þetta svæði við suður Costa Blanca er mjög vinsælt og öll dagleg þægindi, barir/veitingastaðir, golfvöllur og vatnagarður í næsta nágrenni. Fallegar strendur Guardamar og La Mata eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Hinn fallegi þjóðgarður La Mata er skammt frá, þar sem náttúruunnendur geta notið þess að rölta eða hjóla. Svæðið er þjónustað með tveimur helstu hraðbrautum sem tengja helstu borgir; Alicante, Elche, Torrevieja og Orihuela Costa svæðið. Síðustu húsin, tilbúin til afhendingar eru á lóðum á milli 305m2-350m2, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, ásamt þakverönd. Á jarðhæðinni er rúmgóð stofa og borðstofa og eldhús í amerískum stíl. Tvöfaldar glerhurðar í stofunni opnast út á upphækkaða verönd sem er búin pergólu. Hjónaherbergi og baðherbergi eru einnig á jarðhæð. Tvö stór en-suite svefnherbergi eru staðsett á efri hæð með lítilli einkaverönd sem leiðir að þakverönd. Húsin koma með fataskápum í svefnherbergjunum, einkasundlaug og bílastæði á lóð en eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum