Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 9836
Nýjar íbúðir í Doña Pepa, Ciudad Quesada. Skammt frá ströndum Guardamar og með alla þjónustu í næsta nágrenni. Ciudad Quesada er eitt af vinsælustu íbúðahverfum Suður Costa Blanca en þar er golfvöllur, vatnagarður og mikið úrval af veitingastöðum, börum, matvöruverslunum og dægradvöl fyrir alla fjölskylduna.
Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Velja má milli jarðhæðar með eigin garði eða efri hæðar með eigin þakverönd. Frá íbúðunum er fallegt útsýni yfir Las Salinas de la Mata saltvötnin. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug og garðar.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum