Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 221973
Einbýlishús á þessu framúrskarandi svæði; Las Colinas Golf, en Las Colinas er rólegt og afgirt svæði með öryggisgæslu og búið fallegum gróðri og grænum ekrum en völlurinn sjálfur er umkringdur Miðjarðarhafsskóglendi. Hann er enn fremur talinn einn af bestu golfvöllunum á Spáni. Golfvöllurinn er staðsettur nálægt Orihuela Costa svæðinu og allri þeirri þjónustu sem þangað má sækja.
Húsin eru byggð á lóðum frá 855 m2 til 1343 m2 og hafa eigin garð, einkasundlaug og bílastæði.
Þessi glæsilegu hús eru á einni hæð og hafa 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, annað þeirra ensuite, opið eldhús/borðstofu og glæsilega tvöfalda lofthæð í stofu með beinum aðgangi að sundlaugarsvæðinu
Húsin eru hönnuð með það að marki að nýta sólarljósið til fullnustu, með stórum gluggum og innri verönd sem harmónerar fullkomlega.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum