Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 3074077
Nýr kjarni lúxusíbúða í Las Colinas Golf, við suður Costa Blanca. Klúbbhúsið, með veitingastöðum og lítilli marvöruverslun, býður upp á helstu daglegar nauðsynjar en stærri svæði í nágrenninu, svo sem Orihuela Costa og Pilar de la Horadada bjóða uppá fjölbreyttari þjónustu. Las Colinas er 18 holu meistaragolfvöllur og svæðið er rómað fyrir náttúru, landslag og fallegar gönguleiðir meðal furutrjáa og appelsínuakra, kjörin staðsetning fyrir þá sem unna gróðursæld.
Íbúðakjarninn stendur hátt og þaðan má njóta útsýnis yfir golfvöllinn og Miðjarðarhafið en eignirnar snúa í suður eða suðaustur. Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af þremur gerðum; jarðhæð með garði, miðhæð með stórri verönd og þakíbúð með eigin þakverönd.
Allar íbúðir eru byggðar með hágæða efnum og þeim fylgir loftkæling/hitun, eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, fataskápar, lýsing innanhúss og utandyra, auk myndavélardyrasíma, bílastæðis og geymslu í sameiginlegri bílageymslu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum