Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Playa Flamenca
Þessi eign er ekki í boði
REF 3778208
Nýr íbúðakjarni, aðeins 300m frá hinni vinsælu Playa Flamenca strönd, við suður Costa Blanca. Í göngufæri við verslanasvæði með stórri matvörubúð, banka, apóteki, ráðhúsi, kaffihúsum og veitingastöðum. Zenia Boulevard verslanamiðstöðin er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð. Aðrar strendur Orihuela Costa, auk fjögurra golfvalla, eru í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð.
Boðið er uppá íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af mismunandi gerðum; jarðhæðaríbúðir með rúmgóðri verönd, miðhæðaríbúðir með verönd, eða þakíbúðir með þakverönd. Allar íbúðirnar hafa opna setustofu, borðkrók og eldhús. Glæsileg sameiginleg svæði hafa sundlaugar fyrir fullorðna og börn, svæði til afslöppunar, garða, barnaleikvöll og bílakjallara með geymslum.
Allar íbúðir eru afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, fataskápum, geymslu og bílastæði.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Playa Flamenca
Íbúðabyggðin í Playa Flamenca nýtur góðs af fallegri strandgötu sem liggur eftir endilangri sjávarsíðunni og að þekktustu baðströndunum tveimur, La Mosca og Cala Las Estacas. Byggðin er við hlið Punta Prima og til suðurs er La Zenia.
Í þéttbýliskjarnanum Playa Flamenca er að finna margskonar þjónustu, sérstaklega kvöldskemmtanir, og mjög mikið úrval fasteigna. Þar eru aðallega íbúðir og raðhús með stórum sameiginlegum svæðum, þótt einnig sé þar að finna einbýli með einkasundlaugum. Skoðið fasteignaframboð okkar við ströndina
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum