Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 1613469
Nýr íbúðakjarni í Villamartín, aðeins 2 km frá golfvellinum og verslanakjarna, með fjölbreyttu úrval verslana og dægradvalar. Kjarninn er í 5 mínútna akstursfjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og ströndum Orihuela Costa. Boðið er uppá 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðir af mismunandi tegundum; jarðhæð með garði, miðhæð með verönd og efstu hæðar íbúðir með þakverönd. Opin stofa, nútíma eldhús og þvottahús. Sameiginleg sundlaug er í kjarnanum, fyrir fullorðna og börn, leiksvæði, garðar og stæði fyrir bíla og hjól.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum