Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Vistabella Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 1556483
Nýr kjarni einbýlishúsa í Vistabella Golf, íbúðahverfi sem tilheyrir Orihuela Costa og býr að flottum 18 holu golfvelli. Tilvalinn staður fyrir þá sem vilja njóta friðar og geta stundað tómstundir.
Í boði eru einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, á einni hæð þar sem velja má um tvö mismunandi módel; mismunandi ytra útlit og innra skipulag. Húsin hafa opna stofu, borðstofu, nútíma eldhús, þvottahús, verönd og geymslu. Nútíma hönnun með stórum gluggum til að fá sem mest sólarljós. Garður og bílastæði á lóð fylgja en þakverönd og sundlaug eru valfrjáls.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Vistabella Golf
Vistabella Golf er íbúðahverfi hannað við golfvöllinn Vistabella. Hverfið tilheyrir Orihuela og er í aðeins 15 km fjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Í hverfinu er verslanasvæði með matvöruverslunum, veitingastöðum og annarri þjónustu. Í nærliggjandi bæjum, Los Montesinos og San Miguel de Salinas er einnig gott úrval af veitingastöðum, börum og verslunum.
Golfvöllurinn sjálfur er 18 holur og mjög aðlaðandi fyrir alla tegundir leikmanna, fjölbreytni er eitt helsta einkenni vallarins og fallegt umhverfi. Önnur aðstaða til íþróttaiðkana er enn fremur á staðnum, þar á meðal róðrarvélar, tennisvellir og frábær aðstaða til að spila keilu. Staðsetningin og gæði eignanna gerir Vistabella Golf tilvalið svæði fyrir þá sem leita að heimili á góðu verði, fallegu náttúrulegu umhverfi og án þess að vera of langt frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum