Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 1715531
Nýr íbúðakjarni í Pilar de la Horadada, mjög nálægt miðbænum og aðeins 3 km frá ströndum Torre de la Horadada.
Í boði eru 3ja svefnherbergja Íbúðir, ýmist á jarðhæð með stórri verönd og garði eða á efri hæðum með eigin þakverönd. Öll heimili hafa bjarta stofu og borðstofu og opið eldhús, fullbúið eldhústækjum. Stórar verandir, bæði yfirbyggðar og opnar. Innifalið er bílastæði á lóð og í sameign eru garðar og sundlaug og litlar geymslur.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum