Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 1964791
Nýr kjarni raðhúsa í Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca. Hvít sandströnd Torre de la Horadada er í göngufæri við húsin og alla nauðsynlega þjónustu má finna í nágrenninu, svo sem matvöruverslanir, banka, apótek, bari og veitingastaði. Svæðið er vel tengt við veginn til helstu borgir og svæði eins og Torrevieja, Orihuela Costa, og San Pedro del Pinatar.
Hús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opnu og björtu alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Úr aðalsvefnherberginu sem hefur sér baðherbergi, sem og úr stofunni sjálfri, má ganga út í garðinn og sundlaugarsvæðið. Gengið er upp á þakverönd um utanhúss stiga.
Húsin eru afhent tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, lýsing í stofu, eldhúsi og á baðherbergjum fylgir sem og fullbúið eldhús, gólfhiti á baðherbergjum og bílastæði á lóð. Val er milli húsa sem snúa í norður eða suður.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum