Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 4048478
Nútíma einbýlishús í Pinar de Campoverde, íbúðahverfi í Pilar de la Horadada sem umkringt er furuskógum. Stutt er í miðbæinn þar sem fjölbreytt úrval verslana, dægradvalar og fyrsta flokks íþróttaaðstaða er í boði. Aðeins nokkurra mínútna akstur er að Lo Romero golfvellinum og stutt að Higuericas ströndinni í Torre de la Horadada. Góð vegatenging er við helstu borgir héraðsins, svo sem Torrevieja, Guardamar, Santa Pola og Alicante.
Einbýlishús á einni hæð, byggt á 294 m2 lóð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt stórri þakverönd. Aðalhæðin hefur setustofu, borðstofu og eldhús ásamt beinum aðgangi að verönd, garði og sundlaugarsvæði. Hjónaherbergið er með sér baðherbergi. Veröndin og þakveröndin eru tilvalin svæði til að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins úti við.
Húsin eru afhent með foruppsetningu fyrir loftkælingu, þeim fylgir gólfhiti á baðherbergjum, fataskápar, eldhústæki, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Húsið er í rótgrónum íbúðakjarna þar sem einnig má finna sameiginlega sundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum