Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
Þessi eign er ekki í boði
REF 4949664
Einbýlishúsa kjarni í íbúðahverfi í San Miguel de Salinas, sem er eingöngu 5 mínútum frá Villamartín golfvellinum. Öll dagleg þjónusta er í göngufjarlægð frá kjarnanum, s.s. matvöruverslanir, búðir, barir og veitingastaðir. Verlsunarmiðstöðin Zenia Bolevard og strendur Orihuela Costa eru í um 10 mínútna akstursfjarlægð. Svæðið er vel tengt vegakerfinu sem gerir það auðvelt að komast á milli staða, eins og til Torrevieja á 20 mínútum, og til Murcia og Alicante á um 50 mínútum. Flugvöllurinn í Alicante og Murcia er í um klukkustundarfjarlægð.
Einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, þar af eitt svefnherbergi með baðherbergi innaf. Öll húsin eru með opnu skipulagi og opnast útfrá stofu/borðstofu út á veröndina sem er yfirbyggð að hluta með pergólu en þar er sundlaugin og fallegur garður.
Húsunum fylgja tengi fyrir loftkælingu, gólfhiti á baðherbergjum, rafstýrðar gardínu í svefnherbergjum, innlýsing, garður í Miðjarðarhafsstíl með vökunarkerfi, einkasundlaug með LED lýsingu og bílastæði með tengi fyrir rafbíla.
Aukalega er hægt að fá útbúna þakverönd og gera breytingar að höfði hvers og eins.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.
San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum