Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Þessi eign er ekki í boði
REF 3390030
Nýr raðhúsakjarni í Los Balcones, frábæru íbúðahverfi milli Torrevieja og Orihuela Costa, við suður Costa Blanca. Öll dagleg þægindi, eins og stórmarkaðir, barir og veitingastaðir, eru í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð, og háskólasjúkrahúsið í Torrevieja er í næsta nágrenni. Strendur Torrevieja og Orihuela Costa eru í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð frá kjarnanum sem og hin stórkostlega verslunarmiðstöð Zenia Boulevard og fjórir af bestu golfvöllunum við Costa Blanca.
Kjarninn samanstendur af tveggja hæða raðhúsum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum auk þakverandar. Aðalhæðin er með eldhúsi með búri, borðstofu og stofu sem opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta til. Svefnherbergi og baðherbergi má einnig finna á þessari hæð. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, hvort um sig með en-suite baðherbergi og sér verönd. Ytri stigi liggur uppá rúmgóða þakverönd, þar sem frábært útsýni er yfir saltvatnið og sjálft Miðjarðarhafið. Eignunum fylgir ýmist bílastæði innan kjarnans eða á veginum fyrir framan húsin.
Sameiginlegt svæði er í miðju kjarnans, með stórri sundlaug fyrir fullorðna og börn, görðum og svæði til að slaka á í kringum sundlaugina.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Los Balcones er ein elsta íbúðabyggð Torrevieja og þjónustan þar er óviðjafnanleg, með fjölda ólíkra verslana, ásamt tómstundum og sjúkrahúsi.
Um er að ræða þéttbýliskjarna inn til landsins, um fjóra km frá ströndu, og samanstendur fasteignaframboðið af íbúðum og raðhúsum en þó sérstaklega einbýlum með stórum görðum. Hér má sjá fasteignaframboðið í Los Balcones:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum