Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3451899
Nútímaleg einbýlishús staðsett í hinum einstaka kjarna Santa Rosalía, við Murcia-ströndina. Einstakur kjarni sem sker sig úr og einkennist af stóru lóni sem búið er til af norður-ameríska fyrirtækinu, Crystal Lagoons, sem hefur einkaleyfi á tækni sem skapar stórbrotinn grænbláan lit á vatninu. Þetta vatn er þungamiðja alls kjarnans og er umkringt fasteignum og yfir 120.000m2 af görðum og landslagi ásamt íþróttamannvirkjum af öllu tagi. Vatnið býður upp á strönd, bryggju og strandklúbb meðal annarrar þjónustu.
Einbýlishúsin eru á tveimur hæðum með óunnum kjallara sem hægt er að sérsníða gegn aukagjaldi. Velja má milli einbýlishúsa með 2 eða 3 svefnherbergjum. Báðar tegundir einkennast af frumlegum arkitektúr með náttúrulegum steinvegg sem heldur áfram inn í húsið og skapar samfellu milli innra og ytra rýmis. Öll einbýlishúsin eru með bílastæði með uppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla, gólfhita á baðherbergjum, foruppsetningu fyrir loftkælingu, LED-lýsingu, venjulegu snjallheimakerfi og rafdrifnum gluggahlerum í svefnherbergjunum.
Fyrir aukakostnað er hægt að koma fyrir einkasundlaug, klára kjallarann eða bæta við þakverönd með uppsetningu fyrir sumareldhús, nuddpott og sólarorku.Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum