Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3071277
Einbýlishús, í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá Mar Menor við Costa Calida. Göngufæri er í verslanakjarna, þar sem nauðsynleg þjónusta er í boði. Svæðið er vel tengt öðrum helstu borgum eins og Murcia, Cartagena og Alicante, þökk sé hraðbrautinni AP7 og þjóðveginum N332.
Húsin eru á tveimur hæðum og byggð á 156m2 lóðum. Þau samanstanda af 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Stór stofa, borðstofa og eldhús eru í húsunum og stórir gluggar hleypa birtu í rýmið. Hjónaherbergi og baðherbergi er enn fremur á jarðhæð. Á efri hæð eru önnur tvö svefnherbergi, með en-suite baðherbergi í hjónaherberginu, ásamt fataherbergi og verönd með útsýni yfir sundlaugina og garðinn. Bæta má þakverönd við ef óskað er.
Góður frágangur er á eignunum og velja má um ýmislegt. Öll húsin eru tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, þeim fylgja eldhústæki, lýsing, fataskápar, sundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum