Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 1804819
Nýr kjarni húsa í San Pedro del Pinatar, aðeins 1 km frá saltvötnunum og mjög nálægt Mar Menor og allri þjónustu sem þar má finna. Tilvalinn staður fyrir bæði þá sem leita að varanlegri búsetu og þá sem aðeins vilja komast í frí.
Í boði eru tvær gerðir eigna; einbýlishús og raðhús. Einbýlin hafa 3 svefnherbegi og 3 baðherbergi og eru byggð á tveimur hæðum, auk 135,75 m2 kjallara. Opin og björt stofa, nútíma eldhús með helluborði, ofni, örbylgjuofni og innbyggðum ísskáp. Raðhúsin eru á tveimur hæðum, með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Þau hafa þakverönd og kjallara, allt að 72 m2. Björt stofa, tengd eldhúsi með helluborði og ofni. Öll húsin hafa eigin garð og einbýlishúsin hafa einkasundlaug en eigendur raðhúsa hafa aðgang að fallegri sameiginlegri laug.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum