Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 2928469
Nýr íbúðakjarni í Lo Pagan, aðeins 2,5 km frá stórkostlegum ströndum Mar Menor, við Costa Cálida. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er í göngufæri og golfvellirnir á staðnum eru í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð. Kjarninn er staðsettur nálægt ströndinni og miðbænum og er þannig gott fjárfestingartækifæri, til nota í fríum eða allt árið um kring.
Íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi. Velja má milli íbúða á jarðhæð með tveimur veröndum og bílastæði á lóðinni, eða íbúða á efri hæð með útsýni yfir sameiginlegu sundlaugina. Sameiginlegt svæði hefur stóra sundlaug, bílastæði fyrir reiðhjól og bílastæði fyrir íbúðir á efri hæð.
Íbúðirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja fataskápar, inni- og útilýsing og bílastæði.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum