Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 3062755
Þessar lúxus íbúðir eru á besta stað í Lo Pagan, aðeins 120m frá ströndinni og nálægt allri nauðsynlegri þjónustu. Tilvalin staðsetning við spænskan bæ þar sem er líf allan ársins hring og auk þess vinsæll staður fyrir ferðamenn. Bærinn er vel tengdur við helstu borgir og svæði í kring; Murcia, Orihuela Costa og Torrevieja og í 40 mínútna akstursfjarlægð frá Murcia International flugvellinum.
Í boði eru íbúðir með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum en mögulegt er að breyta því í 2ja svefnherbergja eign sem stækkar stofuna. Allar íbúðir hafa opna og bjarta stofu, borðstofu og eldhús, yndislega verönd, með útsýni yfir höfnina, Mar Menor og La Manga skerið. Festa má kaup á bílastæði í kjallara og geymslu.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum