Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 4873801
Nútímaleg einbýlishús í San Pedro del Pinatar í Murcia héraðinu. Svæðið býður upp á alla mögulega þjónustu sem og aðstöðu til að stunda íþróttir og golf í 20 mínútna radíus. Kjarninn er nálægt helstu aðdráttaröflum svæðisins, s.s. La Manga del Mar Menor, Las Salinas de San Pedro lóninu og ströndum Las Higuericas sem eru einungis í 5 mínútna akstursfjarlægð. Sutt er að aka til helstu borga á svæðinu, s.s til Cartagena á 30 mínútum, til Murcia á 40 mínútum og til Alicante á klukkustund. Flugvöllurinn í Murcia er í 30 mínútna fjarlægð og flugvöllurinn í Alicante er í innan við klukkstundarfjarlægð.
Raðhús á tveimur hæðum auk þakverandar, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á lóðum sem eru um 420m2. Jarðhæðin er með stofuna, borðstofuna og eldhúsið, sem er með eyju, í einu opnu rými sem opnast út á stórkostlegt útisvæðið. Yifrbyggt að hluta með einkasundlaug og fallegum garði. Á jarðhæðinni er einnig tvöfalt herbergi sem opnast út á verönd, baðherbergi og þvottaherbergi. Á efri hæðinni eru 2 svefnherbergi með baðherbergi inn af, hjónaherbergið er með fataherbergi og aðgang út á svalir með útsýni yfir sundlaugarsvæðið. Innangengdur stigi leiðir upp á þakveröndina sem er kjörin til að njóta sólarinnar í miðjarðarhafsloftslaginu.
Húsunum fylgir fullbúið eldhús með öllum tækjum, tengi fyrir loftkælingu, rafknúnar gardínur, baðherbergi með handklæðaofni, dyrasími í lit, 35m2 einkasundlag með heitum potti, tengi fyrir hitapumpu, útisturta, lýsing á veröndinni, rafstýrt hlið og bílastæði fyrir tvo bíla með rafhleðslubúnaði fyrir rafbíla.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum