Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benalmádena
REF 4133140
Íbúðakjarni í íbúðahverfinu Arroyo de la Miel í Benalmadena. Kjarninn er í stuttri göngufjarlægð frá miðbæ Benalmádena, með úrvali af daglegri þjónustu og veitingastöðum, auk útivistar, eins og Puerto Marina de Benalmádena, og fjölmörgum golfvöllum á svæðinu. Málaga og flugvöllurinn eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, af mismunandi gerðum: jarðhæðaríbúðir með görðum, miðhæðaríbúðir með stórum veröndum og þakíbúðir með verönd á öllum hliðum. Allar íbúðirnar hafa fallegt útsýni yfir Miðjarðarhafið og eru með innbyggðum fataskápum, eldhústækjum og loftkælingu.
Sameiginlegt svæði er á þaki hússins, með sundlaug og sólbaðsaðstöðu. Einnig er „vatnslyfta“ fyrir íbúa með skerta hreyfigetu. Í bílakjallara eru bílastæði sem hægt er að kaupa.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benalmádena
Benalmádena liggur frá fjallsrótum Sierra de Mijas að strandlengjunni. Bærinn er staðsettur í efri hluta svæðisins og þaðan er stórkostlegt útsýni. Neðar er þéttbýlið Arroyo de la Miel, þar sem flestir íbúar eru staðsettir og að lokum er það Benalmádena-Costa, en þar má finna fjölmörg hótel, golfvelli, spilavíti og sportbátahöfn. Íbúafjöldi í Benálmadena er 72.000 sem gerir bæinn að sjöunda fjölmennasta sveitarfélagi héraðsins og setur hann í annað sæti á eftir borginni Málaga.
Benalmádena er í dag einn helsti ferðamannastaðurinn við Costa del Sol og þekkt fyrir framboð af dægradvöl og tómstunda aðstöðu en þar á meðal er vatnagarður, tvö sædýrasöfn, spilavíti, kláfferja og ein stærsta sportbátahöfn í Andalúsíu. Svæðið er mjög vel tengt við höfuðborgina og aðra þéttbýliskjarna við Miðjarðarhafsstrendur, þar sem AP-7 hraðbrautin fer í gegnum það frá austri til vesturs.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum