Íbúð með verönd og útsýni til hafs í Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Þessi eign er ekki í boði


2

2

70.45 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4279786

Nútímalegar íbúðir með stórkostlegu sjávarútsýni á frábærum stað í Fuengirola. Fullkomin staðsetning, aðeins 200m frá ströndinni, og miðja vegu milli Málaga og Marbella, sem telja má mikilvægustu borgir Costa del Sol. Allar daglegar nauðsynjar eru í næsta nágrenni, eins og matvöruverslanir, íþróttasvæði, ýmsir golfvellir, heilsugæsla, frábærir skólar fyrir alla aldurshópa og óviðjafnanlegt úrval af veitingastöðum, verslunum og tómstundum. Umfangsmikið vegakerfi tengir einnig staðinn við önnur mikilvæg ferðamannasvæði, eins og Fuengirola á aðeins 10 mínútum, Benalmádena og Puerto Marina á 20 mínútum og Marbella og Puerto Banús á 30 mínútum. Málaga flugvöllurinn er í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð.

Í kjarnanum eru íbúðir sem snúa í suður og suðaustur, allar með stórkostlegu sjávarútsýni. Íbúðirnar eru fáanlegar af mismunandi gerðum; íbúðir á miðhæð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, þakíbúðir með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og þakíbúðir á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Með næstum 320 sólskinsdögum á ári, við Costa del Sol, er mikilvægur hluti hönnunarinnar notkun náttúrulegrar birtu, sem nýtur sín í þessum eignum, vegna sólaráttar og stórra glerhurða í stofu. Allar íbúðir eru með opinni hönnun, með sameinuðu eldhúsi, borðkrók og setustofu, sem opnast út á frábæra verönd. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi með útgengi út á verönd. Hjónaherbergið í þakíbúðunum er einnig með sér fataherbergi.

Íbúðirnar eru búnar gæða frágangi og nokkrir valmöguleikar eru í boði. Þeim fylgja loftkæling, ítölsk hönnunareldhús búin eldhústækjum, snjallheimakerfi, myndbandsdyrasími og geymsla. Hverri eign fylgir svo 1 eða 2 bílastæði, eftir gerð, með foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.

Þetta er lokaður kjarni með glæsilegri sameiginlegri aðstöðu. Innanhúss aðstaðan býður uppá slökunarsvæði með gufubaði, tyrknesku gufubaði, nuddherbergi og sólarverönd ásamt líkamsræktarstöð og fjölnota herbergi. Útisvæðin eru kjörinn staður til að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins, með fallegum görðum og göngustígum með útsýnisstöðum, grillsvæði og útsýnislaug með víðáttumiklu sjávarútsýni.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 19 km
  • 4 km
  • 4 km
  • 0 km
  • 4 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.