Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, Marbella (Other areas)
Þessi eign er ekki í boði
REF 3909594
Glæsilegur íbúðakjarni staðsettur á náttúrulegu svæði Cabopino; svæði trjáa og friðaðra furuskóga. Kjarninn er byggður með virðingu fyrir umhverfinu og staðsettur á hárri hæð sem þýðir stórkostlegt útsýni yfir alla ströndina. Staðsettur aðeins 5 mínútur frá Marbella og í innan við 30 km radíus eru meira en 20 golfvellir. Auðvelt aðgengi er að kjarnanum frá A7 hraðbrautinni. Höfnin í Cabopino er í 10 mínútna fjarlægð en þar er mjög rólegt svæði með börum og veitingastöðum. Hvítar sandstrendur Artola eru í 15 mínútna fjarlægð frá kjarnanum og hin þekkta La Cañada verslanamiðstöð er í aðeins 10 mínútna fjarlægð. Malaga flugvöllur er í 30 mínútna fjarlægð.
Kjarninn samanstendur af 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðum af tveimur mismunandi gerðum; jarðhæð með sér garði og efri hæð á tveimur hæðum með stórri þakverönd og vinnuaðstöðu. Öllum eignum fylgja vönduð eldhústæki, loftkæling, tvö bílastæði og geymsla.
Sameiginleg svæði bjóða upp á líkamsræktaraðstöðu, heilsulind, útisundlaug með fossi og bílastæði í kjallara með aðgangi um rafknúið hlið.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella, Marbella (Other areas)
Marbella er í sjálfu sér einn helsti áfangastaðurinn við Costa del Sol. Frábært loftslag, strendur, náttúra og glæsilegar íþróttamiðstöðvar, eru aðeins lítið brot af því sem bærinn býður uppá.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum