Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella
REF 4258160
Einstök einbýlishús í fyrstu línu við golfvöll og með sjávarútsýni, í rólegu íbúðahverfi í Marbella. Svæðið er nálægt miðbæ Marbella með fjölbreyttri þjónustu, eins og matvöruverslunum, skólum fyrir alla aldurshópa, íþróttaklúbbum, nokkrum golfvöllum og aðeins 6 mínútur frá ströndinni. Hið þekkta kennileiti "Pirulí" í Marbella og La Cañada verslanamiðstöðin eru í innan við 5 mínútna fjarlægð. Svæðið er mjög vel tengt öðrum mikilvægum ferðamannasvæðum, þökk sé A-7 og AP-7 hraðbrautunum sem tengjast Puerto Banús á 12 mínútum og Málaga og flugvellinum á 35 mínútum.
Einbýli með 3 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, byggð á 3 hæðum auk þakverandar. Öll húsin snúa í suðaustur eða suðvestur, með stórkostlegu útsýni yfir hafið og garðinn með sundlauginni. Rúmgóðar eignir með náttúrulegri birtu, þökk sé stórum lofthæðarháum glerhurðum sem opnast að fullu og skapa fullkomna tengingu við útisvæðið. Aðalhæðin hefur opna stofu, eldhús og borðstofu í einu stóru alrými með aðgangi að útisvæði. Öll 3 en-suite svefnherbergin eru á efri hæð, hvert með aðgangi að veröndum. Hjónaherberginu fylgir einnig sér fataherbergi. Kjallarahæð, sem er 100m2, samanstendur af baðherbergi og tveimur stórum herbergjum, bæði með náttúrulegu ljósi, sem hægt er að nota sem auka svefnherbergi, líkamsræktaraðstöðu, kvikmyndahús eða annað.
Húsin eru búin gæðafrágangi, þeim fylgir loftkæling með hitastillum í hverju herbergi, gólfhiti á öllu húsinu, viðargólf á efri hæð, eldhús fullbúið eldhústækjum, foruppsetning fyrir snjallkerfi, myndbandsdyrasími, þjófavarnarkerfi með myndavélum, gestasalerni og pergóla á þakverönd, geymsla og tvö bílastæði í sameiginlegum bílakjallara, með beinum aðgangi að húsinu með einkalyftu.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Marbella
Marbella er í sjálfu sér einn helsti áfangastaðurinn við Costa del Sol. Frábært loftslag, strendur, náttúra og glæsilegar íþróttamiðstöðvar, eru aðeins lítið brot af því sem bærinn býður uppá.
Með yfir 147.000 íbúa, er Marbella önnur stærsta borg Málaga héraðs. Auk þess er bærinn ein mikilvægasta ferðamannaborg Costa del Sol og Spánar í heild sinni ef því er að skipta.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum