Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Busot-Aigues de Busot
Þessi eign er ekki í boði
REF 1485673
Nýr kjarni húsa í Busot, mjög nálægt borginni Alicante og San Juan ströndinni. Á svæðinu er öll nauðsynleg þjónusta.
Nútímaleg hönnun þar sem lögð er áhersla á birtu og næði. Í boði eru raðhús með 2 eða 3 svefnherbergjum og einbýlishús með 3 svefnherbergjum. Öll húsin eru með 2 baðherbergjum, eigin garði, verönd og bílastæði. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug, heitur pottur og garðar.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Busot-Aigues de Busot
Busot og Aigües de Busot eru tvö af heillandi þorpum sem finna má í hlíðum fjallanna sem rísa upp af ströndinni í Costa Blanca.
Busot er í hlíðum fjallsins Cabeço d’Or, umkringt gróðri og ræktun. Helsta aðdráttaraflið eru hinir frægu hellar Cuevas de Canalobre, sem mikill fjöldi ferðalanga heimsækir ár hvert, og nálægð við strendurnar í El Campello, sem eru aðeins í 10 km. fjarlægð. Gamli miðbærinn er aðall Aigües de Busot, en einnig er í þorpinu að finna framúrskarandi íbúðabyggðir sem aðallega samanstanda af einbýlishúsum, og mörgum þeirra með stórum görðum og sundlaugum. Í Busot og Aigües de Busot er að finna ævintýralega kosti fyrir fasteignakaupendur sem vilja njóta loftslagsins og lífsins við Miðjarðarhafið í friði frá skarkala strandarinnar. Skoðið fasteignaframboðið í Busot-Aigües de Busot.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum