Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm
Þessi eign er ekki í boði
REF 3311987
Nýr kjarni lúxusíbúða, aðeins 200 metra frá ströndinni í Benidorm, við norður Costa Blanca. Mikið úrval daglegrar þjónustu er á svæðinu og heilmikið úrval afþreyingaraðstöðu, svo sem skemmtigarðar, stórkostlegir golfvellir, skemmtistaðir og margir veitingastaðir í stuttri fjarlægð frá kjarnanum.
Í boði eru íbúðir með 1, 2, 3 eða 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd með frábæru sjávarútsýni. Þakíbúðirnar hafa eigin þakverönd með nuddpotti, útisturtu og barsvæði með borði og pergólu.
Sameiginlegt svæði er 12.000m2, á nokkrum pöllum og stórkostlegt útsýni frá öllum útsýnisstöðum. Stór infinity sundlaug fyrir fullorðna, barnalaug með leiksvæði, upphituð sundlaug og nuddpottur, svæði til afslöppunar, tennis- og padelvöllur, auk garða, eru í sameign utandyra, auk annarrar aðstöðu innandyra, svo sem líkamsræktaraðstöðu með finnsku gufubaði í turni 1 og barnasvæði, kvikmyndasalur og leikjaherbergi herbergi í turni 2. Í kjarnanum eru bílastæði utandyra og í bílakjallara.
Velja má um ýmislegt í frágangi á eignunum og þær eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja fataskápar og gólfhiti á baðherbergjum. Allar íbúðirnar hafa eigið bílastæði, annaðhvort í bílakjallara eða útibílastæði á norðurhluta lóðarinnar, þetta er háð tegund íbúða.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm
Benidorm er talin vera höfuðborg Costa Blanca. Einskoraður leiðtogi sem áfangastur fyrir fríið, en einnig mikilvægur kjarni búsetuferðaþjónustu á Spáni.
Háar byggingar bera við himininn í Benidorm, og því er borgin oft kölluð „New York Miðjarðarhafsins“. Þar er að finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er mjög fjölbreytt, bæði í gerðum og verðum. Fjölbreytt úrval frístunda gera það að verkum að Benidorm er borg fyrir alla. Hvort sem leitað er eftir næturfjöri, fjölskyldustundum eða afslöppun og rólegheitum, þá er endalausa möguleika að finna í Benidorm. Hvort sem um fjárfestingu eða skemmtun er að ræða er öruggt að Benidorm gefur vel af sér fyrir þá sem kaupa fasteign við ströndina. Hér má sjá fasteignaframboðið við ströndina í Benidorm
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum