Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 224897
Einbýlishús, byggð á lóðum frá 421 til 620 m2. Húsin eru glæsilega hönnuð; nútímalínur og hefðbundin efni eins og tré og náttúrulegur steinn falla fullkomlega saman. Eignirnar eru staðsettar á fyrsta flokks svæði í Finestrat, við hlið tveggja golfvalla og rétt við skemmtigarðana Terra Mítica og Terra Natura. Rólegt íbúðahverfi með öllum þægindum í nágrenninu og aðeins nokkrar mínútur tekur að aka að líflegum bæ Benidorm.
Boðið er uppá nokkrar tegundir húsa, öll hafa þau 3 svefnherbergi en innra skipulag er misjafnt. Loftkæling fylgir ásamt gólfhita á baðherbergjum og fyrsta flokks eldhústækjum. Einkasundlaug er innifalin í verði.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum