Costa Blanca Norður, Marina Baja, Villajoyosa
Þessi eign er ekki í boði
REF 7020
Glæsileg samstæða með útsýni yfir Villajoyosa ströndina, friðsælt svæði aðeins 10 km frá Benidorm og 30 km frá Alicante borg. Byggingarnar eru reistar á stórum lóðum og sameiginlegt útisvæði við íbúðirnar eru vel úr garði gert með sundlaug til afnota fyrir íbúa og beinum aðgangi að ströndinni. Í aðeins 250 metra fjarlægð má taka sporvagn til nærliggjandi bæjarfélaga allt frá Alicante til Denia.
Án efa einn af bestu valmöguleikunum þegar velja á eign við Costa Blanca. Íbúðirnar eru rúmgóðar og nýtískulegar með stórum gluggum, svölum og stórkostlegu útsýni yfir hafið. 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðir eru í boði. Öllum eignum fylgir bílastæði utanhúss, nema þakíbúðunum en þeim fylgir bílastæði og geymsla í kjallara.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Villajoyosa
Villajoyosa er á milli Alicante og Benidorm og þekkist einnig undir nafninu La Vila.
Borgin er fræg fyrir súkkulaði, márísk og kristin hátíðahöld og, þökk sé góðri staðsetningu, blómstrandi ferðaþjónustu. Þetta er róleg borg sem hefur varðveitt hefðbundna töfra Miðjarðarhafsins, með sínum fræga gamla miðbæ í öllum regnbogans litum, strandgötunni og iðandi höfninni. Við Villajoyosa er að finna 13 víkur og strendur sem umkringdar eru íbúðabyggðum með framúrskarandi fasteignaframboði. Hjá Medlan er að finna lúxushúsnæði við ströndina í Playa Paraíso. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Villajoyosa:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum