Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
REF 4811027
Nútímaleg einbýlishús á einni hæð með þakverönd, 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, byggð á lóðum sem eru 470 m2. Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í einu opnu rými og er eldhúsið með eyju. Stórir gluggar opnast alveg út á verönd svo útisvæðið nýtist vel en það er yfirbyggt að hluta. Þar er sundlaugin og fullgerður garður. Hjónasvítan er með baðherbergi inn af og fataherbergi. Öll svefnherbergin eru með hurð sem opnast út á verönd. Stiginn frá veröndinni leiðir að rúmgóðri þakverönd þar sem gott er að njóta milda loftslagsins sem Costa Blanca býður upp á allan daginn. Framhlið húsanna eru með marmaraáferð og viðarklæðningu sem gefur húsunum glæsilegt og nútímalegt yfirbragð.
Húsunum fylgja tengi fyrir loftkælingu, eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, rafknúnar gardínur, lýsing í eldhúsi, baðherbergjum og framhlið að utanverðu, einkasundlaug, fullbúinn garður með gervigrasi að hluta, pálmatré og innlendar plöntur, auk yfirbyggðs bílastæðis innan lóðar.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum