Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 3626065
Einbýlishús tilbúin til afhendingar í hinum vinsæla bæ Benijófar, við suður Costa Blanca. Úrval af verslunum, börum og veitingastöðum eru í göngufæri, og enn meira úrval má finna í nágrannabæjunum Rojales og Quesada. Á svæðinu má einnig finna alþjóðlegan skóla. Útivist er í boði víðs vegar í kring, eins og golf og önnur íþróttamannvirki ásamt vatnagarði. Sandstrendur Guardamar eru í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarni tveggja hæða einbýlishúsa, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, auk þakverandar. Á aðalhæð er opið eldhús, borðstofa og setustofa sem opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta ásamt einkasundlaug. Hjónaherbergi og baðherbergi má finna á þessari hæð líka. Tvö en-suite svefnherbergi eru á efri hæð með aðgangi að verönd með útsýni yfir sundlaugina. Þakveröndin býður upp á glæsilegt útsýni yfir fjöllin í kring og er tilvalin til að njóta miðjarðarhafsloftslagsins árið um kring.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja eldhústæki, lýsing inni og úti og garður með sjálfvirku vökvunarkerfi, útieldhús á þakverönd, einkasundlaug og bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum