Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Þessi eign er ekki í boði
REF 3072159
Nútímalegar eignir í Formentera del Segura, en bærinn er í 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndinni og bænum Guardamar. Næg þjónusta er í bænum sjálfum og stutt til Ciudad Quesada og Benijófar þar sem finna má fjölbreyttari þjónustu og dægradvöl.
Nútímaleg og flott hönnun en í boði eru eignir með 2 eða 3 svefnherbergjum. Opið alrými er í eignunum ásamt verönd. Á þakverönd sem er sameiginleg, er frábær aðstaða með sundlaug, gufubaði, aðstöðu til líkamsræktar og svæði til afslöppunar með sólbekkjum ásamt útieldhúsi með grillaðstöðu. Allar eignirnar eru tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja innbyggðir fataskápar og myndavéladyrasími. Festa má kaup á bílastæði og/eða geymslu í sameiginlegum bílakjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Formentera del Segura er dæmigert spænskt þorp í Alicante héraði, sem staðsett er á bökkum Río del Segura. Friðsælt svæði til að njóta náttúrulegs umhverfis en stutt er að aka til helstu ferðamannasvæða, svo sem Guardamar, Torrevieja og Orihuela Costa.
Gott úrval af daglegum þægindum má finna í þorpinu, auk vikulegs útimarkaðar þar sem kaupa má ýmsar afurðir bænda á svæðinu. Glæsilegar strendur Guardamar eru aðeins 10 km í burtu, sem gerir Formentera að kjörnum stað til að njóta hefðbundins spænsks lífsstíls.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum