Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 4922
Lúxus einbýlishús í einkabyggð við hinn virta Las Colinas golfvöll, í Orihuela Costa. Byggðin í Las Colinas er staðsett í 330 hektara stórum dal, sem hvílir milli tveggja hæða sem snúa að sjó. Í hverfinu er ekki byggt þétt og íbúðarhúsin falla vel inn í umhverfið. Las Colinas er staður þar sem slaka má á og njóta 200.000 m2 af náttúru og gönguleiða sem liðast milli gróðursins og sítrónu- og appelsínuakranna. Las Colinas býður íbúum sínum að auki upp á einka Strandklúbb við Campoamor ströndina.
Eignirnar eru hannaðar fyrir þá sem kjósa frið og ró, náttúru, fallegt útsýni og öryggi á völdum stað. Nokkrar mismunandi útfærslur á húsunum eru í boði, sem hægt er að sníða að þörfum kaupandans. Að auki má velja milli lóða frá 800 til yfir 3000 m2 að stærð. Frá öllum húsunum er einstakt útsýni yfir golfvöllinn og frá mörgum þeirra má einnig sjá yfir hafið.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum