Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 209890
Nútíma einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum á Villamartin svæðinu. Mjög nálægt golfvellinum og hinni vinsælu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard og aðeins 4 km frá einni af bestu ströndum Orihuela Costa, La Zenia ströndinni.
Húsakjarninn er staðsettur á hæð og býður upp á fallegt útsýni yfir saltvötn Torrevieja og til hafs. Um er að ræða 12 einbýlishús á tveimur hæðum, með stórri þakverönd og garði með bílastæði og nægu plássi til að koma fyrir sundlaug.
Á jarðhæð er rúmgóð stofa/borðstofa með opnu eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á efri hæð eru tvö tveggja manna svefnherbergi, bæði með baðherbergi og aðgangi að stórri verönd, yfir 22 m2 að stærð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum