Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 1990910
Nýr kjarni raðhúsa í bænum Pilar de la Horadada, við suður Costa Blanca. Strendur Torre de la Horadada eru í aðeins 5 mínútna fjarlægð með bíl, og miðbærinn, með öllum daglegum nauðsynjum, og íþróttamiðstöð bæjarnis eru í göngufæri. Þetta er tilvalin staðsetning, bæði fyrir þá sem vilja dvelja allt árið um kring og þá sem ætla sér að koma í fríum.
Velja má um eign á einni eða tveimur hæðum, allar með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þakverönd. Stofa og eldhús í amerískum stíl ásamt borðstofu er rúmgott alrými með aðgangi að verönd sem er yfirbyggð að hluta, ásamt sundlaugarsvæðinu, sé sundlaug til staðar. Á baðherbergjum eru þakgluggar sem hleypa dagsbirtunni inn. Stór þakverönd með útieldhúsi og gillaðstöðu fylgir húsunum. Fullkomin aðstaða fyrir fjölskyldu og vini til að koma saman og slaka á í sólinni.
Allar eignir eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, gólfhiti er á baðherbergjum og bílastæði á lóð. Ákveðnum lóðum fylgir einkasundlaug.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum