Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Þessi eign er ekki í boði
REF 1722175
Glæsilegt einbýlishús staðsett í Los Balcones, Torrevieja, rólegu íbúðarhverfi 7 km frá miðbænum og með alla nauðsynlega þjónustu í næsta nágrenni, svo sem matvöruverslanir, banka, apótek og skóla. Í aðeins 3ja km fjarlægð eru sumar af bestu ströndum Torrevieja og Orihuela Costa og í 15 mínútna akstursfjarlægð má finna 3 golfvelli (Villamartin, Las Ramblas og Campoamor) og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.
Húsið er 250 m2 að stærð og lóðin 1099 m2. Byggt á einni hæð þar sem finna má rúmgóða stofu, eldhús, 4 svefnherbergi, eitt þeirra með fataherbergi, 4 baðherbergi, þvottahús og vélaherbergi. Stór þakverönd, garður, bílastæði fyrir tvo bíla og stór sundlaug eða 14x3.5m tilbúin til uppsetningar á upphitunarkerfi ef óskað er. Húsið er vel frágengið og innifelur aukahluti eins og loftkælingarkerfi, gólfhita og heitt vatn með svokölluðu aerotermia kerfi. .
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Los Balcones
Los Balcones er ein elsta íbúðabyggð Torrevieja og þjónustan þar er óviðjafnanleg, með fjölda ólíkra verslana, ásamt tómstundum og sjúkrahúsi.
Um er að ræða þéttbýliskjarna inn til landsins, um fjóra km frá ströndu, og samanstendur fasteignaframboðið af íbúðum og raðhúsum en þó sérstaklega einbýlum með stórum görðum. Hér má sjá fasteignaframboðið í Los Balcones:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum