Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima
Þessi eign er ekki í boði
REF 132735
Nýjar eignir á hinu eftirsótta svæði Punta Prima, suður af Torrevieja, 300 metra frá Punta Marina verslunarkjarnanum og í 5 mínútna aksturfjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni. Íbúðirnar eru staðsettar gegnt nýja bæjargarðinum og nálægt fallegum ströndum Rocio del Mar, Playa de Punta Prima, La Zenia og Playa Flamenca. Í aðeins 10 km fjarlægð eru 3 golfvellir; Villamartin Golf, Las Ramblas Golf og Campoamor Golf.
Í boði eru íbúðir á jarðhæð með garði og íbúðir á efri hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar hafa 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi, rúmgóða verönd og eldhúsin afhendast fullbúin eldhústækjum.
Hverri eign tilheyrir bílastæði í kjallara. Sameiginleg sundlaug og garðar eru í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima
Rétt við mörk Torrevieja og Orihuela Costa er Punta Prima, fullkomin íbúðabyggð fyrir þá sem vilja kaupa fasteign á Costa Blanca.
Þar er að finna stórkostlegt úrval þjónustu, auk þess fylgir sá kostur að vera nálægt miðbæ Torrevieja en njóta um leið ró og kyrrðar á nokkuð þéttbyggðu svæði. Meginaðdráttarafl byggðarinnar í þessum hluta Orihuela Costa er gullin ströndin, strandgatan og ótrúlegt úrval tómstunda, skemmtana og fasteigna. Skoðið fasteignaúrvalið við ströndina í Punta Prima:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum