Lúxus einbýli í Mar Menor Golf Resort, Murcia

Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland

Þessi eign er ekki í boði


8

9

700.00 m2

2567.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3063717

Þetta 700m2 einbýlishús er staðsett á Mar Menor Golf Resort, aðeins 5 km frá ströndum Mar Menor.

Á svæðinu er 18 holu golfvöllur hannaður af Jack Nicklaus. Fimm stjörnu Grand Luxury Intercontinental Hotel, íþróttamannvirki, matvöruverslun, barir, veitingastaðir, líkamsræktarstöð, spa o.fl. eru til staðar og svæðið er afgirt og með öryggisgæslu en tveir inngangar á svæðið eru búnir vaktmönnum allan sólarhringinn auk þess sem þeir fara um svæðið reglulega.

Húsið samanstendur af 5 svefnherbergjum og 3 herbergjum til viðbótar, sem nota má eftir þörfum (skrifstofa, svefnherbergi, þvottahús eða annað). Níu baðherbergi eru í húsinu, 56m2 eldhús og 218m2 stofa með háu lofti. Aðal svefnherbergið er 112m2 með einstakri inni- og útisundlaug og heitum potti en við húsið er einnig stór útisundlaug við stofuna þar sem finna má svæði til afslöppunar með útsýni yfir vatnið og golfvöllinn. Önnur 7 herbergi hússins hafa öll sér baðherbergi og eru milli 20 og 30m2 að stærð.

Húsið er staðsett á 2.567m2 einkalóð við rólega götu á svæðinu og aðeins nokkur skref eru að hótelinu og klúbbhúsinu. Eignin snýr í suðvestur og er því bjart og notalegt allan ársins hring.

Frágangur og efnisval eru í fremsta gæðaflokki og í takt við slíka lúxuseign. Að auki státar eignin af miðstöðvarkerfi, sjálfvirkum gluggahlerum, harðvið á gólfum, stórum arni, borðstofu fyrir 30 manns, öryggiskerfi með aðstöðu fyrir húsvörð og mörgu öðru.

Á lóðinni má nýta 620 m2 að auki, til byggingar á húsnæði í framhaldi af eigninni eða húsnæði fyrir gestkomandi eða þjónustu.

See more...

  • einkasundlaug
  • opin verönd
  • opin bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland

Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.

Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.

  • 30 km
  • 22 km
  • 32 km
  • 6 km
  • 30 km
  • 26 km

Nánari upplýsingar um Murcia Inland

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.