Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3081197
Nýr húsakjarni, við Roda Golf, inni í landi í Los Alcazares við Costa Cálida. Fimm mínútna akstursfjarlægð er til bæjarins, Los Alcázares, þar sem allar daglegar nauðsynjar eru í boði, sem og fallegar strendur við Miðjarðarhafið. Roda golfvöllurinn er einnig nálægt og býður upp á 18 holu völl. AP7 hraðbrautin tengir svæðið við aðrar helstu borgir, Murcia, Cartagena og Alicante.
Kjarninn býður upp á raðhús með rúmgóðum þakveröndum. Velja má um tvær gerðir húsa; hús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og hús með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Bæði húsin hafa opna stofu með borðstofu og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd með einkasundlaug. Hjónaherbergið er með sérbaðherbergi. Rúmgóð þakverönd býður upp á útsýni yfir nærliggjandi svæði en gengið er uppá hana um ytri stiga bakvið húsið.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja eldhústæki, fatask
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum