Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 847611
Nýr kjarni af einbýlishúsum í Los Dolores, litlum bæ við strendur Murcia, aðeins 3,5 km frá Mar Menor. Rólegur staður sem býður uppá alla nauðsynlega þjónustu og góða tengingu við aðra stóra bæi á svæðinu svo sem Cartagena, Murcia, Orihuela Costa og Torrevieja. Í boði eru einbýlishús á einni hæð með þakverönd, 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, nútíma eldhúsi með aðgangi að bakgarðinum og bjartri stofu/borðstofu með aðgangi að sundlaugarsvæðinu. Húsunum fylgir einkasundlaug.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum