Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 2771675
Ný parhús í Lo Pagán í bænum San Pedro del Pinatar. Þessi strandbær við Costa Cálida skartar sandströndum sem liggja að Mar Menor og La Manga rifinu. Allar daglegar nauðsynjar, svo sem stórmarkaðir, bankar, barir og veitingastaðir, eru í göngufæri ásamt ýmsum tómstundamöguleikum. Svæðið býður upp á aðstöðu til útivistar eins og golf og vatnaíþróttir, til dæmis köfun.
Tveggja hæða einbýlishús auk þakverandar, með 3 eða 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Aðalhæðin samanstendur af opinni stofu, borðstofu og eldhúsi en úr alrými er gengið úta verönd sem er yfirbyggð að hluta, ásamt sundlaugarsvæði. Lítil geymsla, hjónaherbergi og baðherbergi má einnig finna á jarðhæð. Önnur svefnherbergi eru á efri hæð, tvö þeirra með en-suite baðherbergjum. Eitt svefnherbergi hefur fataherbergi og aðgang að einkaverönd með útsýni yfir sundlaugina. Rúmgóð þakverönd býður uppá frábært útsýni yfir svæðið.
Hús með 3 svefnherbergjum hafa tvöfalda lofthæð í stofu.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja eldhústæki, innilýsing og LED útilýsing, fullfrágenginn garður, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum