Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
Þessi eign er ekki í boði
REF 222937
Nútímalegar íbúðir staðsettar fyrir framan golfvöllinn Mar Menor, aðeins 6 km frá stórkostlegum ströndum Mar Menor og með glæsilegri aðstöðu eins og fimm stjörnu SPA hóteli.
Íbúðir með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og opnu, fullbúnu eldhúsi og stofu með aðgangi að stórri verönd. Öll heimili njóta fallegs útsýnis yfir sundlaugina og golfvöllinn.
Velja má milli jarðhæðar eða efri hæðar og öllum eignum fylgir geymsla í kjallara.
Þessar eignir eru flokkaðir sem ´ferðamannaíbúðir´ sem þýðir að af þeim þarf að greiða 21% virðisaukaskatt, í stað hins venjulega 10% skatts sem á við um kaup á húsnæði á Spáni. Hins vegar, ef kaupandinn kaupir eignina í gegnum fyrirtæki sem skráð er á Spáni, má fá þennan 21% skatt endurgreiddan. Eignirnar eru þannig tilvaldar fyrir fjárfesta.
Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
Torre Pacheco tilheyrir Murcia og liggur skammt frá bænum Los Alcázares við Mar Menor. Svæðið er þekkt fyrir áberandi vindmyllur og úrval golfvalla en bærinn sjálfur býður upp á gott úrval af daglegri þjónustu, börum og veitingastöðum ásamt heilsugæslu og tveimur skólum og er þannig kjörinn kostur fyrir búsetu allt árið um kring.
Þótt um sé að ræða svæði inni í landi eru strendur Mar Menor í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð, þar sem margar vatnaíþróttir eru í boði, svo sem köfun, snorkl og siglingar. Medland býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Torre Pacheco, allt frá íbúðum til einbýlishúsa, sem staðsettar eru nálægt daglegri þjónustu, ýmsum golfvöllum og í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum