Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona
Þessi eign er ekki í boði
REF 4106513
Nýr íbúðakjarni á svæði sem þekkt er undir nafninu „Nýja gullna mílan“ og er ört vaxandi svæði, staðsett milli Puerto Banús og Estepona en þarna má finna nokkra virtustu golfvelli í héraðinu. Aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð er til Estepona, með margs konar þjónustu og frábæru úrvali af menningar- og tómstundastarfi. Málaga flugvöllur er í innan við klukkutíma akstursfjarlægð.
Íbúðir með 2, 3 og 4 svefnherbergjum, af ólíkum gerðum sem hentað getað flestum. Veldu á milli jarðhæðaríbúða með stórum görðum, miðhæðaríbúða með stórum veröndum eða þakíbúða á tveimur hæðum með stórum veröndum. Öllum íbúðum fylgir bílastæði og geymsla, auk eldhústækja, loftkælingar og gólfhita.
Kjarninn er lokaður og býður uppá frábært úrval af sameiginlegri aðstöðu, með nokkrum útisundlaugum, paddle- og tennisvelli, líkamsræktarstöð með búningsklefum og vinnusvæði, að ógleymdri 24 klst. öryggisgæslu með CCTV jaðareftirliti.Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona
Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.
Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum